Frá moldarhaugi að gróskumiklum garði
Frá moldarhaugi að gróskumiklum garði
Það er auðvelt að dást að fallegum garði þegar hann er kominn í fullan skrúða. Það sem sést síður er vinnan, skipulagið og þolinmæðin sem liggja þar að baki. Þetta verkefni hófst á opnu og fremur hráu svæði þar sem markmiðið var að skapa hlýlegan og gróskumikinn fjölskyldugarð. Áhersla var lögð á skýrar línur, náttúruleg efni og gróður sem myndi verða fallegri með hverju árinu.
Upphafið
Framkvæmdir hófust með grófhreinsun svæðisins og mótun landsins. Á þessu stigi er erfitt að sjá fyrir sér hvernig garðurinn mun líta út þegar verkinu lýkur, en grunnurinn að framtíðargarðinum er lagður strax í upphafi.

Formið tekur á sig mynd
Fljótlega tók nýr viðbættur pallur að myndast ásamt upphækkuðum beðum sem gefa garðinum meiri dýpt og tengja húsið betur við útisvæðið. Til að vinna með hæðarmun lóðarinnar var reistur stoðveggur sem myndar falleg skil milli bílastæðis og garðsins. Með því varð til skjólbetra og hlýlegra útisvæði þar sem gróðurinn gæti síðar notið sín.

Góður jarðvegur er lykillinn
Þegar form garðsins hafði verið ákveðið tók við einn mikilvægasti þáttur verkefnisins, jarðvegsvinnan. Þótt sá hluti sjáist lítið þegar framkvæmdum lýkur hefur hann hvað mest að segja um hvernig garðurinn þróast á komandi árum. Góð gróðurmold og vönduð undirvinna eru grunnurinn að heilbrigðum og fallegum gróðri.

Fyrstu plönturnar koma sér fyrir
Þegar moldarvinnu lauk tók við gróðursetning og lagning grasþaka. Á þessum tímapunkti eru plöntur enn litlar og mikið af opnum flötum sýnilegt. Margir eiga erfitt með að sjá fyrir sér hvernig garðurinn muni líta út eftir nokkur ár, en með réttu plöntuvali og smá þolinmæði tekur náttúran við sér.

Tíminn er besti vinur garðyrkjumannsins
Fyrstu árin eftir framkvæmdir eru mikilvæg. Þá eru plönturnar að festa rætur og garðurinn smám saman að taka á sig þann svip sem stefnt var að frá upphafi. Með hverju árinu verða beðin þéttari, skjól meira og samspil trjáa, runna og fjölæringa fallegra.
Garðurinn í dag
Nokkrum árum síðar hefur garðurinn tekið stakkaskiptum. Tré, runnar og fjölæringar hafa fyllt upp í rýmið, myndað skjól og skapað þá heildarmynd sem stefnt var að frá upphafi. Haustlaukar, fjölæringar og sívaxandi gróður gera það að verkum að garðurinn breytist og þróast með hverju tímabili. Þar sem eitt sinn var moldarhaugur og vinnusvæði er í dag orðið að gróskumiklum og fallegum garði sem heldur áfram að verða fallegri með hverju árinu.
